Adrenalíngarðurinn er eini garður sinnar tegundar á Íslandi.
Garðurinn er frábær skemmtun fyrir alla hvort sem er fyrir fjölskylduna, vinahópinn eða vinnustaðinn og hér ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Adrenalíngarðurinn er staðsettur á Nesjavöllum rétt utan við Reykjavík og það tekur 30-40 mínútur að keyra í garðinn frá Reykjavík.
Í garðinum eru yfir 20 þrautir sem henta ýmist fyrir hópa eða einstaklinga. Þessar þrautir eru allar fjölbreyttar og því ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Adrenalíngarðurinn er byggður eftir evrópskum stöðlum sem tryggja að vinnulag og öryggismál eru eins og best verður á kosið. Við höfum öryggi þátttakenda alltaf í fyrirrúmi.
Þrautirnar í garðinum eru meðal annars risarólan, staurinn og háloftabrautin.
Háloftabrautin Frábærar þrautir í 4 og 9 metra hæð. Háloftabrautin samanstendur af 13 mismunandi þrautum þar sem reynir á þor og jafnvægi, hér skiptir líkamlegur styrkur ekki máli, einungis andlegur. Brautin er í tæplega 10 metra hæð og þátttakendur eru festir við öryggisvír allan tímann í öllum þrautunum.
Risarólan Æðislegasta róluferð ævinnar! Í Adrenalíngarðinum er stærsta róla landsins, 12 metra há og þú velur hversu hátt þú ferð. Þú flýgur hratt í gegnum loftið, færð góðan kipp í magann og ræður hreinlega ekki við þig - bara verður að reka upp öskur á meðan á róluferðinni stendur.
Staurinn Staurinn er 10 metra hár. Það geta allir spreytt sig á staurnum og með réttri hvatningu geta flestir staðið upp á honum. Takmarkið er að standa uppréttur efst á staurnum og stökkva síðan af honum út í loftið.
Adrenalin.is - Skúlatúni 4 - 105 Reykjavík Sími 414 2910 -
Žetta netfang er variš fyrir ruslrafpósti, žś žarft aš hafa Javascript virkt til aš skoša žaš