Þingvallagátan er skemmtilegur ratleikur á fallegum stað
Þingvallagátan er bæði ratleikur og orðaleikur. Leikurinn berst um svæðið umhverfis þingstaðinn og lausn gátunnar krefst samhæfingu huga og handa meðlima samstillts hóps.
Þingvellir eru af mörgum talinn merkilegasti og fallegasti staður Íslands. Þar mætast þjóðleiðir og jarðskorpuflekar, þar er andrúmsloftið þrungið af sögu aldanna og þar skartar náttúran sínu fegursta. Yfir Þingvöllum grúfir líka myrkur og dulúð, því þar hafa verið unnin grimmdarverk og glæpir. Það ætti þess vegna ekki að koma neinum á óvart að þessi þekkti staður eigi sér líka leyndarmál.
Til að finna lausn þessarar krefjandi gátu þarf að leysa sjö þrautir sem allar reyna á hæfileika og samstillingu hópsins. Lausn hverrar gátu fyrir sig færir hópinn nær lokalausninni. Hver þraut krefst kunnáttu í landafræði, sögu, færni í snerpu, hraða og almennrar útsjónasemi. Nauðsynlegt er að einn eða fleiri hópar spili leikinn. Þetta er ekki tímakeppni, heldur snýst leikurinn eingöngu um að finna lausn gátunnar. Það tekur venjulega um 2 tíma að leysa gátuna.
Í útsýnispúslinu reynir á hversu vel hópurinn þekkir fjallahringinn. Útsjónasemin getur þó hæglega komið í staðinn, alla vega ef sést til fjalla.
Merk ártöl í sögu Þingvalla mynda tímaturninn. Nú er of seint að iðrast yfir að hafa sofið í sögutímum og nauðsynlegt að bretta upp ermarnar og virkja þær gráu. Ef sögukunnáttan klikkar kemur útilokunaraðferðin til hjálpar við turnbygginguna.
Í vatnslottóinu geta allir haft heppnina með sér, en þá verður maður líka að vera snöggur og nauðsynlegt er að hafa alla 5 rétta.
Þrautasúlan á ættir sínar að rekja til Da Vinci lykilsins. Hópurinn þarf þess vegna að standast helstu táknfræðingum snúning í leit að lausnarorði.
Þegar hópurinn situr í stafasúpunni gildir að geta greint kjarnann frá hisminu.
Í orðaveiðinni sannast að sýnd veiði er ekki gefinn.
Þeir sem ekki vilja enda ferð sína í grafreitinum þurfa að reiða sig á þekkingu á höfuðskáldum Íslands og bókmenntaarfi.
Verð er 2.900 kr og lengd dagskrár um 2 tímar
Hentugt fyrir 15-300 manns.
Adrenalin.is - Skúlatúni 4 - 105 Reykjavík Sími 414 2910 -
Žetta netfang er variš fyrir ruslrafpósti, žś žarft aš hafa Javascript virkt til aš skoša žaš