Skemmtilegur leikur í hjarta Reykjavíkur. Mjög hentugur fyrir starfsmannahópa og félagasamtök sem vilja líflega afþreyingu í hjarta borgarinnar.
Við höfum langa og góða reynslu af þessum póstaleik sem hentar stærri hópum sem vilja snarpa og vandaða afþreyingu án mikillar fyrirhafnar eða tilkostnaðar skemmtinefndanna.
Hópnum er skipt í allt að 7 mismundandi lið sem keppa sín á milli í léttum og skemmtilegum þrautum sem reyna á samvinnu, útsjónarsemi og skipulag liðanna. Liðin fá einnota myndavélar sem þau nota í keppninni. Þannig er tryggt að minningin lifi og ekki fari á milli mála hvernig til tókst!
Við bjóðum póstaleikinn allt árið, svo fremi að veðrið sé sæmilegt til útiveru í Laugardalnum. Þátttakendur þurfa aðeins að mæta klæddir til útiveru. Adrenalín sér um allt annað.
Tilvalið er að enda vinnudaginn á póstaleiknum og skella sér síðan á veitingastað eða í leikhúsferð.
Hér eru dæmi um þrautir í leiknum
Blindingjabraut. Nú reynir á samstarfið. Allur hópurinn er blindur og þarf að komast í gegnum blindingjabrautina. Til aðstoðar er lína sem hægt er að lesa sig eftir. Þó er á leiðinni torfærur sem krefjast þess að meðlimir hópsins hjálpist að, til að allir komist heilir á leiðarenda.
Twister. Á afmörkuðum fleti eru litaðir reitir. Allir nema einn í hópnum eiga að setja hendur og fætur á samlita reiti. Þegar allir hafa komið sér fyrir tekur sá sem ekki lagðist á reitina mynd því til sönnunar að hópurinn hafi leyst verkefnið.
Flöskuskeyti. Hér þurfa allir í hópnum að vinna saman sem einn, og ekki er nóg að ana út í neitt því þessi þraut krefst einnig skipulagningar og útsjónarsemi. Flaskan er staðsett inn í stórum hring og á hópurinn að veiða hana þaðan, veiðafærin eru þannig hönnuð að lágmark 4 þurfa að veiða og því fleiri sem taka þátt því auðveldari verður veiðin!!
Verð er 2.900 kr. og lengd dagskrár um 2 tímar
Hentugt fyrir 15-100 manns.
Adrenalin.is - Skúlatúni 4 - 105 Reykjavík Sími 414 2910 -
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það