|
| Kajak í Reykjavík |
|
Sjókajakferð frá Geldingarnesi í Reykjavík. Skemmtileg Kajakferð í borginni sem tekur 3 þrjá tíma og hentar öllum sem vilja prófa kajak. Í þessum ferðum er Lámark 4 og hámark 25 þátttakendur. Þetta er sáraeinfalt! Þú kemur, við kynnum búnað og öryggisreglur og svo er kajökunum ýtt á flot. Kayakaróður er skemmtileg upplifun..., - að sitja 'í vatninu' en vera samt þurr og um leið 'svífa' áfram með sáralítilli fyrirhöfn. Við erum oft spurð hvort bátarnir séu stöðugir? Svarið er einfalt: Þeir eru álíka stöðugir og reiðhjól! Jæja, þeir eru nú stöðugri en það! Hreyfingar bátanna eru mjúkar og jafnvægið kemur eins og skot. Verð á mann 6000 kr.
|
|