Við göngum um kristalblátt völundarhús sem mótað er af vatni, bráðnun og framskriði jökulsins.
Það er einungis 2 mín. ganga að jökulsporði Sólheimajökuls. Þar spennum við á okkur brodda, belti og hjálm, bindum okkur saman í línu og höldum inn á jökul.
Þetta er raunverulegur könnunarleiðangur þar sem hreyfing jökulsins og bráðnun breyta honum í sífellu og dagamunur er á landslaginu. Landformin eru fjölbreytt: Djúpir svelgir, íshellar og undarleg göng.
Í þessari ferð er farið í ævintýralandið og það kannað
Þessi ferð hentar öllum og er í boði allt árið. Sólheimajökull eru u.þ.b. 170 km frá Reykjavík og má gera ráð fyrir rúmum tveim tímum í akstur hvora leið
Adrenalin.is - Skúlatúni 4 - 105 Reykjavík Sími 414 2910 -
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það