Hraunhellarnir eru hinir einu sönnu undir- og undraheimar Íslands. Þar er myrkrið svartara og tíminn afstæðari en annarstaðar.
Góð leiðsögn og búnaður gera þér kleift að upplifa þessa undraveröld óháð veðri eða dagsbirtu. Við ábyrgjumst gott 'veður' í hellaferðum fram til ársins 2750!
Í Gjábakkahrauni, austan Þingvalla, eru margir spennandi hellar. Hellaferð á þessum slóðum hentar vel sem viðbót við ‘Gullna hringinn' svokallaða. Svo er hellirinn einnig nálægt Adrenalíngarðinum á Nesjavöllum.
Gjábakkahellir er hluti af geysimikilli hrauná sem rann neðanjarðar í síðasta gosi á Þingvöllum. Hellirinn er stór en nokkuð seinfarinn. Leiðarlýsingin er álíka dularfull og ferð á annað tilverustig: "Þið haldið eftir löngum dimmum göngum þar til þið sjáið bjart, hvítt ljós framundan".
Ónefndur starfsmannastjóri sem fór í þessa ferð með fyrirtæki sínu sagði að ferðin um Gjábakkahelli kæmi oft upp í hugann þegar unnið væri að krefjandi verkefnum hjá fyrirtækinu. "Fyrst við réðum við Gjábakkahelli, -þá förum við nú létt með þetta...” varð honum að orði.
Komdu með og sjáðu ljósið! - Það kemur að notum síðar.
Adrenalin.is - Skúlatúni 4 - 105 Reykjavík Sími 414 2910 -
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það