OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.

  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
  • www.ultimathule.is
Leišarendi ķ Blįfjallahrauni
Ævintýri í iðrum Jarðar!

Hellaferð í Leiðarenda er spennandi ferð fyrir ævintýraþyrsta hópa.  Hentar vel eftir vinnu eða sem hluti af lengri ferð. Hellirinn er aðeins í uþb 10 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Hellaferð í Leiðarenda er spennandi ferð fyrir ævintýraþyrsta hópa. Hentar vel eftir vinnu eða sem hluti af lengri ferð.


Þessi ferð er sérstaklega álitlegur kostur við rysjóttar vetraraðstæður því hellaskoðun má stunda í öllum veðrum, hvort heldur sem er að nóttu eða degi. í Leiðarenda er alltaf logn - og alltaf myrkur.

Hraunbreiður Íslands geyma steingerða ævintýraheima þar sem glóandi hraunelvur hafa runnið neðanjarðar og skilið eftir sig ranghala og hvelfingar. Í hraunhellum er að finna einstakar jarðmyndanir, - dropasteina, hraunspena, straumfægða veggi og litríkar útfellingar.


Allt þetta hefur Leiðarendi í Tvíbollahrauni upp á að bjóða. Hellirinn er 750 m langur, greiðfær og aðgengilegur, aðeins 25 km frá Reykjavík og að honum er einungis 150 m. gangur, í mosagrónu hrauni, við Bláfjallaveg.


Leiðarendi er u.þ.b. 2000 ára gamall og hafa dropsteinar og aðrar myndanir lítið breyst allan þann tíma. Við brýnum því sérstaklega fyrir þátttakendum að raska engu og taka ekkert nema myndir.
 
 

Adrenalin.is - Skúlatúni 4 - 105 Reykjavík
Sími 414 2910 - Žetta netfang er variš fyrir ruslrafpósti, žś žarft aš hafa Javascript virkt til aš skoša žaš