|
| Fosshótel Nesbúð |
|
Adrenalíngarðurinn er í góðu samstarfi við Fosshótel Nesbúð hvað varðar ýmiss konar mannamót. Adrenalíngarðurinn sér um afþreyinguna og Nesbúð um fundaraðstöðu, mat og gistingu. Nesbúð er tilvalinn staður fyrir fyrirtæki og aðra sem vilja halda fundi og ráðstefnur í rólegu og þægilegu umhverfi skammt frá Reykjavík. Árshátíðir og skemmtanir Nesbúð er vinsæll staður hjá fyrirtækjum og hópum til þess að halda árshátíðir og aðrar skemmtanir. Hótelið getur tekið á móti allt að 100 manns í mat og gistingu. Ef halda á árshátíð eða fara í starfsmannaferð er tilvalið að skreppa aðeins út fyrir bæjarmörkin og njóta alls þess sem Nesbúð og Nesjavellir hafa upp á að bjóða. Upplagt er að mæta snemma og nota daginn til gönguferða eða annarrar útivistar á svæðinu. Gisting Fosshótel Nesbúð er ódýr gistimöguleiki. Hægt er að gista í svefnpokaplássi eða leigja eins og tveggja manna herbergi með eða án baðs. Bað er á hverjum gangi. Í Nesbúð eru 60 herbergi; 20 með baði og 40 án baðs. Gestir Nesbúðar láta fara vel um sig meðan á dvöl þeirra stendur. Þar eru tvær þægilegar setustofur með sjónvarpi og ein setustofa með bar. Gestir hótelsins geta látið þreytuna líða úr sér í tveimur heitum pottum sem eru við hótelið og um leið notið stórkostlegrar fjallasýnar Hengilsins sem gnæfir yfir. Í Nesbúð er fallegur veitingasalur þar sem njóta má góðrar þjónustu og úrvals matseldar í notalegu umhverfi. Boðið er upp á morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Þingvellir Nesjavellir liggja að Þingvallavatni svo að stutt er í Þingvelli, helsta helgistað þjóðarinnar. Þar söfnuðust Íslendingar saman árið 930 og stofnuðu Alþingi. Íslenska þjóðveldið stóð fram til 1262 en þá voru Íslendingar sjálfstæð þjóð og yfirstjórn landsins í höndum Alþingis á Þingvöllum. Alþingi var þá í senn bæði löggjafarþing og dómþing. Þar voru sett lög í landinu og deilur milli manna settar niður. Alþingi er því elsta starfandi þjóðþing í heiminum. Þingvellir voru fundarstaður þjóðarinnar fram til ársins 1798, eða í 868 ár samfleytt. Síðan þá hafa Þingvellir verið staður þar sem Íslendingar hafa komið saman til að fagna helstu tímamótum í sögu landsins. Þar ber líklega hæst þjóðhátíðina 1874 þegar Íslendingar fögnuðu 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar og fyrstu stjórnarskrá landins sem Kristján IX, konungur Danaveldis, færði þjóðinni af því tilefni. Lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum 17. júní 1944. Þingvellir eru oft vettvangur Íslendingasagnanna en þær eru flestar ritaðar á 13. öld. Íslendingasögurnar eru taldar til mestu gersema Íslendinga og helsta framlag þeirra til heimsmenningarinnar. Þingvellir eru líka afar merkilegt svæði jarðfræðilega. Talið er að landspildan, þar sem Þingvellir standa, hafi verið að misganga og síga í 200-300 þúsund ár. Þetta brota sigbelti liggur sunnan frá Hengli og norður um Kaldadal. Sigdeildin hefur sigið um ríflega 40 metra frá því að hraunið, sem þekur Þingvelli, rann. Við þetta mynduðust hinar miklu gjár, Almannagjá og Hrafnagjá, svo og vestanverð dældin þar sem Þingvallavatn er nú. Oft er talað um að á Þingvöllum mætist Evrópa og Ameríka og það er ekki fjarri lagi því að sigdældin hefur skapast vegna þess að jarðskorpuflekar Evrópu og Ameríku eru að færast í sundur. |
|